Sniðaspjall:Íslensk stjórnmál
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þó þetta sé nú ágætistafla er full erfitt að koma fyrir myndum og skýringarmyndum í greinum sem hún er í, eins og t.d. á alþingi, spurning að minnka þetta eða láta flokkana jafnvel sjá um þetta. --Ævar Arnfjörð Bjarmason 11:04, 19 okt 2004 (UTC)
- Eina vandamálið varðandi þetta er það að þú færðir myndina ofar á Alþingissíðunni, sem mér finnst fráleitt. --Bjarki Sigursveinsson 15:17, 19 okt 2004 (UTC)
- Hví? --Ævar Arnfjörð Bjarmason 15:36, 19 okt 2004 (UTC)
Vegna þess að hennar staður er neðst á síðunni, mér finnst eðlilegt að efst séu upplýsingar um Alþingi almennt og neðar sé að finna hverfular upplýsingar um stöðu dagsins í dag. Þetta tíðkast til dæmis á ensku greinunum um ýmis þjóðþing sbr. Kanada, Bandaríkin og Þýskaland en metnaður minn gagnvart íslensku Alþingisgreinni stefnir að einhverju álíka, helst betra. --Bjarki Sigursveinsson 19:01, 19 okt 2004 (UTC)
- Mér finnst enn að þetta snið sé að fullu óþarft, og betur þjónað með flokkakerfinu. Það er það stórt og leiðinlegt að það kemur algerlega í veg fyrir að hægt sé að setja inn myndir og gröf eins og tíðkast á öðrum greinum án þess að þetta fari út í alveg fáránleg umbrot á síðunni.
- Þar að auki finnst mér miður að þú sért að breyta wikisniðst töflunni í HTML töflu þar sem fyrra sniðið er ákjósanlegra. --Ævar Arnfjörð Bjarmason 12:17, 20 okt 2004 (UTC)
- Ég sé ekki hvernig þú ætlar að koma því í kring að flokkakerfið veiti með sama hætti yfirsýn yfir mikilvægustu valdastofnanir ríkisins þar sem atriðin í þessum lista falla illa í sama flokkinn. Ef það eru einhver snið af þessu tagi sem flokkakerfið getur auðveldlega leyst af hólmi þá eru það kassarnir sem við setjum á síður landa og tilgreina aðild þeirra að hinum og þessum stofnunum. Þetta snið er bara innflutt beint af ensku wikipedia þar sem það er notað á sama hátt og ég geri hér og þar sem það hefur gagnast m.a. mér við mína fróðleiksleit. Þetta veitir skýra og aðgengilega yfirsýn yfir stjórnarfar á Íslandi og einhvern veginn hélt ég að það væri hjálp í því í svona verkefni eins og Wikipedia er. Mér skjátlast kannski en ég hélt satt best að segja að Wikipedia snerist um innihald og upplýsingagildi en ekki útlitið. Meint vandræði (ég hef ekki orðið var við þau) við það að setja myndir á síður út af þessu sniði eru afskaplega léttvæg og þar er einungis verið að gera úlfalda úr mýflugu. --Bjarki Sigursveinsson 17:15, 20 okt 2004 (UTC)
- Vissulega eiga greinar að veita upplýsingar um umfjöllunarefni sitt, og fyrst og fremst að gera það áður en þær koma með lista yfir tengd efni, tengla og snið. Það sem ég hef á móti þessu sniði er að það er það stórt og lóðrétt frekar en lárétt að það er afar erfitt að koma því fyrir inn í grein þar sem mikið er um myndir og gröf. Vil ég þá frekar gera þetta eins og gert er á greininni um Vigur með línulega algebrusniðinu. --Ævar Arnfjörð Bjarmason 06:18, 21 okt 2004 (UTC)
- Ég sé ekki hvernig þú ætlar að koma því í kring að flokkakerfið veiti með sama hætti yfirsýn yfir mikilvægustu valdastofnanir ríkisins þar sem atriðin í þessum lista falla illa í sama flokkinn. Ef það eru einhver snið af þessu tagi sem flokkakerfið getur auðveldlega leyst af hólmi þá eru það kassarnir sem við setjum á síður landa og tilgreina aðild þeirra að hinum og þessum stofnunum. Þetta snið er bara innflutt beint af ensku wikipedia þar sem það er notað á sama hátt og ég geri hér og þar sem það hefur gagnast m.a. mér við mína fróðleiksleit. Þetta veitir skýra og aðgengilega yfirsýn yfir stjórnarfar á Íslandi og einhvern veginn hélt ég að það væri hjálp í því í svona verkefni eins og Wikipedia er. Mér skjátlast kannski en ég hélt satt best að segja að Wikipedia snerist um innihald og upplýsingagildi en ekki útlitið. Meint vandræði (ég hef ekki orðið var við þau) við það að setja myndir á síður út af þessu sniði eru afskaplega léttvæg og þar er einungis verið að gera úlfalda úr mýflugu. --Bjarki Sigursveinsson 17:15, 20 okt 2004 (UTC)
[breyta] Tillaga
Ég legg til að núverandi snið haldi sér en það verði aðeins notað á greininni Íslensk stjórnmál sem á að vera nokkurskonar "portal" að tengdum greinum. En einnig að á hinum greinunum verði komið fyrir fyrirferðaminna sniði en þó áberandi og ofarlega á síðunum, skellti fram tillögu á Snið:Íslensk stjórnmál 2 sem er nákvæmlega eins og þetta snið hér án listans. Ef einhver er með betri hugmyndir um útlit þess þá eru þær vel þegnar. --Bjarki Sigursveinsson 02:00, 5 nóv 2004 (UTC)