Þingræði
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Þingræði er sú stjórnskipunarregla að ríkisstjórn geti aðeins setið með stuðningi þjóðþingsins. Það er grundvallarregla í flestum lýðræðisríkjum en í öðrum er stuðst við forsetaræði.
[breyta] Tengill
Á Íslandi er þingræði en í 1. gr. stjórnarskrár segir: "Ísland er lýðveldi með þingbundinni stjórn". Þingræðisreglan er ekki skráð réttarregla heldur er hún mótuð af margra alda þróun, í fyrstu aðallega á Bretlandi en fluttist síðan til annarra landa. Í enföldustu mynd sinni segir hún að ríkisstjórn á hverjum tíma verði að njóta stuðnings meirihluta löggjafarþings. Sá stuðningur þarf ekki að vera fólginn í beinum stuðningi. Dæmi eru um minnihlutastjórnir sem njóta óbeins stuðnings flokks eða flokka sem verja hana vantrausti og styðja þá að jafnaði mikilvægustu mál hennar svo sem afgreiðslu fjárlaga. Því má orða regluna svo að ríkisstjórn verði a.m.k. að vera liðin af meiri hluta löggjafarþings - hér á landi Alþingis.
Reglan mótaðist af baráttu þings og konungs og er samofin minnkandi völdum þjóðhöfðingjans - yfirleitt konungs - í þingræðislöndum. Þingræðisreglan var ekki fullmótuð fyrr en á 19. öld í Bretlandi. sjá Þingræðisreglan, Jón Sigurgeirsson, 1978