Alí (mannsnafn)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Alí er eitt algengasta karlmannsnafn í heimi. Það kemur fyrir bæði sem fornafn og fjölskyldunafn. Það er arabískt að uppruna og kemur af rótinni -l-y sem þýðir „hár“. Sá sem fyrstur bar þetta nafn var Alí ibn Abu Talib frændi og stuðningsmaður Múhameðs. Nafnið er sagt koma af einu af 99 nöfnum Guðs: „al-Ali“ (hinn hæsti).