Drammen
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Drammen | |
Upplýsingar | |
Fylki | Buskerud |
Flatarmál – Samtals |
366. sæti 137 km² |
Mannfjöldi – Samtals – Þéttleiki |
10. sæti 58.730 428,69/km² |
Borgarstjóri | Tore Opdal Hansen |
Þéttbýliskjarnar | Drammen |
Póstnúmer | 3þús og eitthvað |
Opinber vefsíða |
Drammen er borg í Buskerud-fylki í Noregi. Íbúafjöldi var 116.641 árið 2006 en 57.759 bjuggu innan marka sveitarfélagsins. Í gegnum borgina rennur Drammenselva sem hefur verið lífæð hennar í gegnum tíðina.
Drammen er vinabær Stykkishólms.
Efnisyfirlit |
[breyta] Saga
Hellaristur í Drammen eru taldar vera 6-7.000 ára gamlar. Þá var sjávarstaða hærri en hún er í dag, svo mannvistarleyfar voru nokkuð hátt í ásunum kringum borgina. Stærsta hellaristan sýnir elg og líffæri hans nokkuð vel.
Í raun byggðist Drammen þrjú aðskilin þorp; Bragernes, Strømsø og Tangen. Þessi þrjú sameiðustu þó árið 1811 sem Drammen eins og hún er í dag.
Þegar skógarhögg var sem mest í Buskerud rak timbrið niður Drammenselva niður að Drammensfirði, þar sem það var unnið, sagað og flutt til kaupandans. Í kringum Drammen var því mikil iðnaður í kringum sagirnar og pappírsframleiðslu.
Allt fram á 9. áratug síðustu aldar fór allt skolp óhreinsað í Drammenselva en nú hefur verið gerð breyting á, og er áin að breytast út skolp-æð með 300 m³/s í eina bestu laxveiðiá landsins.
[breyta] Náttúra
Drammen liggur í dal milli tveggja ása og rennur Drammenselva í botni hans. Norðan við dalinn er Bragernesåsen og sunnan hans er Konnerudåsen. Í báðum ásum eru skíðasvæði sem eru opin frá desember fram í apríl.
Í Drammen er auðvelt að komast út í skóg og liggja þar stígar um allar trissur. Þessir stígar nýtast vel hvort sem er sumar eða vetur, enda eru troðnar skíðaleiðir um báða ásanna.
[breyta] Stjórnmál
Borgarstjóri Drammen er Tore Opdal Hansen og situr hann fyrir Hægrimenn.
[breyta] Heimild
- Knudsen, Tor Adler og Sellæg, Jo.. Drammen - Kort og godt. Brakar lokalhistoriks forlag, 1992. 82-91263-00-0
25 stærstu borgir Noregs (með íbúafjölda 2005 skv. Hagstofu Noregs) |
---|
Ósló (811,700) | Björgvin (213,600) | Stafangur (173,100) | Þrándheimur (147,100) | Fredrikstad (97,100) | Drammen (90,700) | Skien (85,100) | Kristiansand (63,800) | Tromsø (52,400) | Tønsberg (45,000) | Álasund (44,100) | Haugesund (40,300) | Sandefjord (39,600) | Moss (34,500) | Bodø (34,100) | Arendal (30,900) | Hamar (28,800) | Larvik (23,100) | Halden (22,000) | Harstad (19,400) | Lillehammer (19,100) | Molde (18,600) | Mo i Rana (17,900) | Kongsberg (17,700) | Horten (17,700) |