Dursley-fjölskyldan
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Dursley-fjölskyldan er frændfjölskylda Harry Potter úr samnefndum bókum eftir J.K. Rowling.
Þegar foreldrar Harrys eru myrtir er hann skilinn eftir á dyraþrepinu hjá Dursley fjölskyldunni, rétt rúmlega ársgamall.
Fjölskyldan býr í tveggja hæða húsi númer 4 á Runnaflöt (enska: Privet Drive), Litlu Whinging, (enska: Surrey).
Petunia Dursley er móðursystir Harrys og hafði því fyrrum ættarnafnið Evans, rétt eins og Lily, móðir Harrys. Petunia hefur ekki snefil af galdrahæfileikum og hatar galdra. Hún er grönn með óvenju langan háls sem hún notar til að kíkja yfir grindverkið og inn í garð nágrannanna, enda er hún forvitin, snobbuð og forpokuð.
Harry er neyddur til að kalla Vernon Dursley Vernon frænda, þó að Vernon sé ekki blóðskyldur honum. Vernon deilir galdrahatrinu með konu sinni og er mjög leiðinlegur við Harry. Vernon vinnur í boraverksmiðju og er stuttur, feitur og nánast hálslaus.
Dudley Dursley er sonur þeirra hjóna og á svipuðum aldri og Harry. Hann er akfeitur, með ljósan lubba og 7 undirhökur. Honum er spillt af foreldrum sínum og fær allt sem hann vill.
Hjá Dursley fjölskyldunni býr Harry við mikið harðræði.