Einhliða einangrun Japan
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Einhliða einangrun Japan (鎖国: Sakoku) hófst árið 1641 og varði í tvær aldir fram til 1853. Einangrunin var hryggjarstykki í utanríkisstefnu Tokugawa shogúnstjórnarinnar, Dauðarefsing lá við því að koma til Japan eða fara frá Japan. Dauðarefsing við því að yfirgefa Japan var ekki aflögð fyrr en á Meiji-tímabilinu.
Undantekning á reglunni var verslun Hollendinga á Dejima eyju í Nagasaki, í Nagasaki fóru og fram viðskipti við Kína og á Tsushima svæðinu í Nagasaki fóru fram viðskipti við Kóreumenn. Kóreumenn stunduðu og viðskipti á Ryukyu eyju við suðvestanverða Kyushu. Til viðbótar sendu kaupsýslumennirnir reglulega sendinefndir til Shogúnsins í Edo.
Einagruninni var framfylgt svo Shogúnstjórnin gæti haft hemil á samskiptum við önnur ríki, síðar var hún notuð til að verja japanskar auðlindir fyrir ágangi útlendinga, takmarka útflutning á japönskum málmum.