Femínistafélag Íslands
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Femínistafélag Íslands er íslensk félagasamtök femínista stofnað 14. mars 2003. Félagið berst fyrir jafnrétti kynjanna í víðum skilning.
Birtingarmyndir ójafnréttis og mismununar eru að mati íslenskra femínista margar. Klámvæðing og kynbundið ofbeldi s.s. vændi, nauðganir og mansal. Staðalímyndir um s.k. kynjahlutverk karla og kvenna. Kynbundinn launamunur á vinnumarkaði sem sýnt hefur verið fram á með rannsóknum. Lágt hlutfall kvenna í stjórnunar- og ábyrgðarstöðum og í fjölmiðlum.
[breyta] Starfsemi
Starfsemi félagsins er skipt í 11 starfshópa. Hóparnir hittast mánaðarlega. Til forystu í hverjum þeirra er ráðskona eða ráðskarl.
- Öryggisráð (Ofbeldisvarnarhópur)
- Aðgerðir gegn vændi, mansali og nauðgunum. Starfar í samvinnu við Stígamót.
- Staðalímyndahópur
- Aðgerðir gegn neikvæðum ímyndum á opinberum vettvangi s.s. mótmæli gegn fegurðarsamkeppnum og birtingu athugnasemda vegna auglýsinga.
- Stjórnmálahópur
- Þrýstihópur sem stuðlar að samvinnu við íslenska stjórnmálaflokka.
- Fræðsluhópur
- Hópur sem stuðlar að jákvæðri ímynd femínisma út á við og nýliðun innan félagsins.
- Vefhópur (Útgáfuhópur)
- Starfshópur vefs og útgáfu efnis fyrir félagið.
- Atvinnu- og efnahagsmálahópur
- Hópur sem sérhæfir sig í stöðu kvenna á vinnumarkaði.
- Margbreytileikahópur
- Hópur sem vinnur að því að gæta hagsmuna kvenna innan minnihlutahópa s.s. nýbúa, öryrkja og samkynhneigðra.
- Menningarmálahópur
- Hópur sem vinnur að eflingu þætti kvenna í list og menningu.
- Karlahópur (femínisma- og karlahópur)
- Hópur karla og kvenna, femínista, sem vinnur að því að fræða karla um femínisma.
- Heilbrigðismálahópur
- Óvirkur
- Ungliðahreyfing félagsins.
Félagið heldur úti póstlista sem er opinn öllum og hægt er að nálgast hér.