Fimmundahringurinn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fimmundarhringurinn er hringur sem notaður er í tónfræði til að átta sig á tengslum milli tóntegunda. Á ytri hringnum eru merkt inn dúr tóntegundir og í innanverðum hringnum eru sammarka moll tóntegundir. Eins og sjá má á myndinni hefst hringurinn á C dúr/a moll þar sem þessar tóntegundir hafa engin föst formerki. Farið er síðan up og niður í fimmundum sitt hvoru meginn niður hringinn og bætist við eitt formerki við hvert skref. Fimmund up er G dúr/e moll með einum kross og fimmund niður er F dúr/d moll með einu béi.