Glúmur Óleifsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Glúmur Óleifsson var annar eiginmaður Hallgerðar langbrókar Höskuldsdóttur. Bræður Glúms hétu Ragi og Þórarinn og var hann kallaður Ragbróðir. Hallgerður og Glúmur unnust mjög og á meðan þau bjuggu saman var hún vinsæl og vel liðin. En Glúmur gerði þau mistök að slá hana kinnhest og drap Þjóstólfur, fóstri Hallgerðar, hann. Hallgerður var ekki sátt með það og sendi þá Þjóstólf til Hrúts frænda síns sem drap hann.