Gramm
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- Gramm var líka íslensk tónlistarútgáfa og hljómplötuverslun sem starfaði í Reykjavík frá 1981 til 1987.
Gramm er einn þúsundasti hluti af kílógrammi og mælieining fyrir massa. Tákn þess er g og þar sem það er tákn en ekki skammstöfun er ekki ritaður punktur á eftir því nema við enda málsgreinar. Grammið var grunneining í metrakerfinu eins og það var notað áður fyrr. Í SI kerfinu er kílógrammið grunneining massa.