Gro Harlem Brundtland
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Gro Harlem Brundtland (fædd 20. apríl 1939) er norskur stjórnmálamaður og leiðtogi.
Gro fæddist í Bærum og gekk til liðs við norska verkamannaflokkinn aðeins 7 ára gömul. Hún útskrifaðist sem læknir (cand. med.) frá Háskólanum í Osló 1963 og fékk Masters-gráðu í lýðheilsu frá Harvard háskóla árið 1965.
[breyta] Stjórnmálaferill
Gro var umhverfisráðherra Noregs á árunum 1974 til '79 en í febrúar 1981 fram í október tók hún sér sæti í forsætisráðherrastólnum, fyrst kvenna. Ríkisstjórn hennar vakti líka mikla athygli, því af 18 ráðherrum ríkisstjórnarinnar voru 8 konur - mun meira en áður hafði tíðkast.
Hún var einnig forsætisráðherra á árunum 1986 til 1989 og 1990 til 1996. Hún hætti sem formaður norska verkamannaflokksins árið 1992.
Frá maí 1998 til júlí 2003 var Gro framkvæmdarstjóri alþjóða heilbrigðisstofnunarinnar (WHO).
Fyrirrennari: Oddvar Nordli |
|
Eftirmaður: Kåre Willoch |
|||
Fyrirrennari: Kåre Willoch |
|
Eftirmaður: Jan P. Syse |
|||
Fyrirrennari: Jan P. Syse |
|
Eftirmaður: Thorbjørn Jagland |
|||
Fyrirrennari: Hiroshi Nakajima |
|
Eftirmaður: Jong-Wook Lee |