Herjólfur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- Sjá einnig mannsnafnið Herjólfur
|
|
![]() |
|
Skipstjóri: | Sævaldur Elíasson |
Útgerð: | Eimskip |
Þyngd: | 3.354 brúttótonn |
Lengd: | 70,5 m |
Breidd: | 16 m |
Ristidýpt: | 10 m |
Vélar: | 2 × 2700 kW |
Siglingahraði: | 15,5 sjómílur |
Tegund: | Bílferja |
Bygging: | 1992, Flekkefjord, Noregi |
Herjólfur hefur verið heiti á þremur ferjum sem gengið hafa á milli Heimaeyjar í Vestmannaeyjum og Þorlákshafnar. Núverandi Herjólfur, sá þriðji í röðinni, var tekinn í notkun árið 1992, og var þar um að ræða margfalt stærra og hraðaskreiðara skip en það sem á undan gekk. Hann tekur um 60 fólksbíla og allt að 524 farþega.