Hosni Mubarak
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Muhammad Hosni Said Mubarak (arabíska : محمد حسنى سيد مبارك ) (fæddur 4. maí 1928), almennt þekktur undir nafninu Hosni Mubarak (arabíska: حسنى مبارك ) er fjórði forseti Egyptalands og hefur gegnt starfinu frá 14. október 1981, eða í yfir 24 ár.
Mubarak var útnefndur varaforseti Egyptalands eftir að hafa klifrað upp metorðastigann í egypska flughernum. Hann tók við forsetastóli af Anwar Sadat eftir að sá síðarnefndi var myrtur af öfgamönnum í kjölfar friðarsamkomulags hans við Ísrael.
Embætti forseta Egyptalands er almennt talin valdamesta staða í Arabaheiminum. Mubarak hefur haldið fast um stjórnartaumana allan feril sinn í embætti en leyfði þó nýverið lýðræðislegar kosningar í landinu.