Hvörf
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hvörf (forngríska: περιπετεῖα, peripeteia) eru stefnubreyting á atburðarás í bókmenntaverki. Hugtakið er runnið frá Aristótelesi. Í riti sínu Um skáldskaparlistina skilgreinir hann það svo:
- Hvörf er það, þegar á atburðarásinni verður alger stefnubreyting, eins og talað hefur verið um, og það á þann hátt að það sé sennilegt eða óhjákvæmilegt, eins og í Oídípúsi, þegar maðurinn kom til að gleðja Oídípús og losa hann við óttann vegna móðurinnar, en kom hinu gagnstæða til leiðar með því að ljóstra upp um uppruna hans.[1]
Aristóteles taldi að hvörf væru nauðsynleg í góðum harmleik og að best væri að þau færu saman við kennsl, eins og þegar Oídípús uppgötvar eigið ætterni. Í harmleikjum seinni tíma er oft en ekki alltaf að finna hvörf. Til dæmis eru þau greinileg í Makbeð eftir William Shakespeare en ekki eru allir sammála um að þau séu til staðar í Óþelló eftir sama höfund.[2]
[breyta] Tilvísanir
[breyta] Heimildir
- Aristóteles (1976) (Kristján Árnason þýddi og ritaði inngang). Um skáldskaparlistina. Hið Íslenska bókmenntafélag
- Jón Viðar Jónsson (1985). Leikrit á bók. Bókmenntafræðistofnun Háskóla Íslands.