Lómatjörn
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu

Lómatjörn er bær í Grýtubakkahreppi í Suður-Þingeyjarsýslu. Ábúendur eru Valgerður Sverrisdóttir og Arvid Kro. Bændur ásamt þeim eru Guðný Sverrisdóttir og Jóhann Ingólfsson, og Sigríður Sverrisdóttir og Heimir Ingólfsson. Þau reka bæinn sameiginlega sem félagsbú.
Lómatjarnarætt er kennd við Lómatjörn, en hún er komin af hjónunum Guðmundi Sæmundssyni (1861-1949) og Valgerði Jóhannesdóttur (1875-1965), sem þar settust að árið 1903.