Litlulaugaskóli
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Litlulaugaskóli er grunnskóli á Laugum í Reykjadal en hann sækja nemendur búsettir í Reykjadal. Skólaárið 2006-2007 stunda 47 nemendur nám við skólann. Skólinn er rekinn af sveitarfélaginu Þingeyjarsveit en skólastjóri er Baldur Daníelsson. Þingeyjarsveit rekur einnig tónlistarskóla og leikskóla í eins hæðar byggingu við hlið skólans.
[breyta] Aðstaða
Í skólabyggingunni eru 5 kennslustofur en einnig er þar Bókasafn Reykdæla. Skólinn er útbúinn 8 fartölvum ásamt 5 borðtölvum. Íþróttakennsla fer fram í íþróttahúsinu á Laugum sem er í eigu Framhaldsskólans á Laugum.