Lordi
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lordi er finnsk þungarokkshljómsveit sem sigraði í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva árið 2006. Sveitin er þekkt fyrir að koma ávallt fram í skrímslabúningum, raunar neita þeir alfarið að láta taka af sér myndir eða fara í viðtöl án búninganna. Nafnið er samsvarandi enska orðinu „lord“ sem getur þýtt ýmislegt í íslensku.
Sveitin hefur verið starfandi síðan 1992 en gaf út sína fyrstu plötu 2002. 2006 tók hún svo þátt í undankeppni Eurovision í Finnlandi með lagi „Hard Rock Hallelujah“ sem hún sigraði með nokkrum yfirburðum. Hljómsveitin var þó nokkuð umdeild sem framlag Finna í aðalkeppninni í Aþenu bæði í Finnlandi sem og annarsstaðar í Evrópu, t.d. neitaði Kýpur að spila myndbandið við lag þeirra. Sveitin hefur verið sökuð um djöfladýrkun en herra Lordi, söngvari hennar, hefur vísað því á bug enda hefur hún m.a. sent frá sér lög eins og „The Devil is a Loser“ (djöfullinn er aumingi). Lordi vann þó keppnina með 292 stigum, 44 fleiri en lagið sem var í öðru sæti, og mesta stigafjölda sem hefur sést í keppninni frá upphafi. Þetta var einnig fyrsti sigur Finnlands í Eurovision sem aldrei hafði lent í hærra sæti en því sjöunda. Engin þjóð hefur fengið fleiri stig í keppninni.
Efnisyfirlit |
[breyta] Meðlimir
[breyta] Núverandi
[breyta] Fyrrum
- Magnum - bassi
- Kalma - bassi
- Enary - hljómborð (Erna Siikavirta)
[breyta] Útgefið
[breyta] Plötur
- Get Heavy (2002)
- The Monsterican Dream (2004)
- The Monster Show (samblanda af Get Heavy & Monsterican Dream sem seld var í Bretlandi) (2005)
- The Arockalypse (2006)
[breyta] Smáskífur
- „Would You Love a Monsterman?“ (2002)
- „Devil is a Loser“ (2003)
- „Blood Red Sandman“ (EP) (2004)
- „My Heaven is Your Hell“ (2004)
- „Hard Rock Hallelujah“ (2006)
[breyta] Tónlistarmynbönd
- „Devil is a Loser“
- „Would You Love a Monsterman?“
- „Blood Red Sandman“
- „Hard Rock Hallelujah“