Lukkuborgarætt
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Lukkuborgarætt hefur verið ríkjandi konungsætt Danmerkur frá 1863, er Kristján IX tók við ríki. Hún er kennd við Glücksburg, bæ í Slésvík, og heitir reyndar fullu nafni Slesvig-Holsten-Sønderborg-Lyksborg á dönsku, en Schleswig-Holstein-Sonderburg-Glücksburg á þýsku. Lukkuborgarætt er kvísl af Aldinborgarætt, sem hefur verið við völd í Danmörku síðan Kristján I varð konungur árið 1448.