Marquis de Sade
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Donatien Alphonse François de Sade (1740–1814), betur þekktur sem Marquis de Sade var franskur aristókrati og höfundur sagna sem, á sínum tíma, töldust flokkast undir undir argasta klám. Heimspeki de Sade byggist á því að maðurinn eigi að vera fullkomlega frjáls, þ.á m. undan hvers kyns siðareglum, og eigi þannig að geta leitast við að finna sjálfum sér hina fullkomnu ánægju. Hugtakið sadismi er dregið af nafni hans.