Pétur Guðmundsson
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Pétur Karl Guðmundsson, fæddur 30. október 1958 í Reykjavík, var fyrstur evrópskra körfuknattleiksmanna til að ganga til liðs við NBA lið. Það var árið 1981 sem hann var valinn í þriðju umferð nýliðavalsins og samdi í kjölfarið við Portland Trail Blazers. Seinna lék hann með Los Angeles Lakers og San Antonio Spurs.
Pétur, sem er 218 cm hár, var einnig atvinnumaður í Argentínu í stuttan tíma.
Á Íslandi lék hann með Val, ÍR, Tindastóli og Breiðabliki, skoraði að meðaltali 21,7 stig í 82 leikjum. Hann lék 53 A-landsleiki, en megnið af sínum ferli var hann útilokaður frá landsliðinu samkvæmt reglum FIBA, rétt eins og aðrir atvinnumenn í íþróttinni.
Í byrjun árs 2001 var Pétur kjörinn leikmaður 20. aldarinnar í karlaflokki, og um leið leikmaður í liði aldarinnar.
[breyta] Heimildir
- Leikni framar líkamsburðum eftir Skapta Hallgrímsson, útg. Körfuknattleikssamband Íslands 2001
- KKÍ.is