Prófsumma
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Prófsumma er tala sem er reiknuð út frá fyrirliggjandi gildum og geymd með þeim. Hlutverk prófsummu er að staðfesta að gögnin séu rétt, ef prófsumma er reiknuð út aftur á sömu gildum ætti hún að vera hin sama og sú fyrri.
Gögnin eru annaðhvort töluleg eða stafastrengir sem litið er á sem töluleg gögn svo að reikna megi prófsummuna.
Dæmi um prófsummu er níundi stafur kennitölu Íslendinga, hún er reiknuð út frá formúlu sem notar fyrstu átta stafina.
Prófsummur eru mikið notaðar til að sannreyna að stafræn gögn hafi ekki breyst í geymslu eða flutningi og að þeim hafi ekki verið breytt.
[breyta] Tengill
- Jacksum (ókeypis forrit byggt á opnu kerfi til að skapa prófsummur)