Propertius
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sextus Aurelius Propertius (fæddur á milli 57 og 46 f.Kr., dáinn um 12 f.Kr.) var rómverskt skáld.
Líkt og Virgill og Óvidíus var Propertius í hópi þeirra skálda sem nutu stuðnings auðmannsins Gaiusar Maecenasar. Propertius var náinn vinur Óvidíusar og varði mestallri ævinni í Róm. Lítið annað er vitað með vissu um ævi hans.
Af verkum Propertiusar eru varðveittar fjórar bækur af kvæðum undir elegískum hætti.
Fyrsta prentaða útgáfan af kvæðum Propertiusar kom út í Feneyjum árið 1472.
Efnisyfirlit |
[breyta] Helstu útgáfur
- Barber, E.A. (ritstj.), Sexti Properti Carmina (Oxford: Oxford University Press, 1953/1950). - Latneskur texti ásamt handritafræðilegum athugasemdum.
- Fedeli, P (ritstj.), Propertivs (Stuttgart og Leipzig: Teubner, 1984/1994). - Latneskur texti ásamt handritafræðilegum athugasemdum.
- Propertius, Elegies, G.P. Goold (þýð.) (Cambridge, Mass.: Harvard University Press, 1990/1999). - Ensk þýðing í óbundnu máli ásamt latneskum texta.
[breyta] Tengt efni
- Catullus
- Cornelius Gallus
- Hóratíus
- Latneskar bókmenntir
- Lúcretíus
- Gaius Maecenas
- Martíalis
- Óvidíus
- Tibullus
- Virgill
[breyta] Tengill
[breyta] Heimild
- Greinin „Propertius“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 30. október 2005.