Rúst (jarðfræði)
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Rústir eru fyrirbæri í freðmýri. Rústir eru bungur í landslagi sem myndast þegar jarðvegsyfirborð hækkar þegar íslinsa myndast í fínkornóttum jarðvegsefnum undir einangrunarlagi t.d. mólagi. Fyrsta stig rústar er allstór þúfa, næsta stig er þegar jarðvegur og gróður byrja að veðrast burt í hliðum rústarinnar og síðasta stigið er þegar myndast tjörn þar sem íslinsan hafði áður verið. Rústir eru flokkaðar sem stöðugar, óstöðugar og staðnaðar eftir því hvernig gróður er á þeim.