Rafmagnsverkfræði
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Rafmagnsverkfræði er ein af greinum verkfræðinnar. Hún fjallar um rafmagn, hagnýtingu þess, hönnun á tækjabúnaði og fjarskipti svo fátt eitt sé nefnt.
Rafmagnsverkfræði er kennd í háskólum úti um allan heim sem og í HÍ. Víða um heim (m.a. í HÍ) er rafmagnsverkfræði kennd í námsbraut ásamt tölvuverkfræði (sem er náskyld grein). Sá sem lýkur slíkri námsbraut hlýtur gráðu í rafmagns- og tölvuverkfræði.
[breyta] Undirgreinar
Undirgreinar rafmagnsverkfræði eru margar og sumar þeirra þverfaglegar. Sem dæmi um undirgreinar má nefna:
- Merkjafræði
- Fjarskiptaverkfræði
- Raforkudreifikerfi
- Stýritækni
- Rafeindatækni
- Mælitækni
- Tölvustýringar
- Nanótækni