Sólstöður
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Sólstöður eða sólhvörf er sú stund þegar sól fer lengst frá miðbaug himins til norðurs eða suðurs. Sólstöður eru tvisvar á ári, sumarsólstöður á tímabilinu 20.-22. júní, þegar sólargangurinn er lengstur og vetrarsólstöður 20.-23. desember, þegar hann er stystur. Breytileiki dagsetninganna stafar fyrst og fremst af hlaupársdögum. Nafnið sólstöður vísar til þess að sólin stendur kyrr, þ.e. hættir að hækka eða lækka á lofti.
Sjá einnig jafndægur.
[breyta] Heimild
- Almanaksskýringar (Þorsteinn Sæmundsson) (Sótt. 8. apríl 2007)