Skyr
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Skyr er unnið úr undanrennu. Varan er aðeins unnin á Íslandi en þekktist áður fyrr einnig í nágrannalöndunum. Mysa verður til við framleiðslu skyrs.
[breyta] Framleiðsluferlið
Undanrenna er hituð nálægt suðumarki en með því verður hún nánast gerilsneydd. Undanrennan er því næst kæld niður í 37°C og hleypi bætt út í. Einnig er þétti bætt við en það er skyr úr fyrri framleiðslu. Að þessu loknu er skyrið látið hlaupa, mysunni hellt af og skyrið síað.
Grundvallaratriði framleiðsluferlisins eru svipuð í dag og þau voru fyrr á öldum.
[breyta] Heimildir
- Skyr. Skoðað 13. desember, 2005.