Steinadalsheiði
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Steinadalsheiði er stuttur fjallvegur á milli Gilsfjarðar og Kollafjarðar á Ströndum, milli bæjanna Gilsfjarðarbrekku og Steinadals. Við Heiðarvatn á miðri heiðinni eru mót þriggja sýslna - Strandasýslu, A.-Barðastrandasýslu og Dalasýslu.
Malarvegur sem lokast yfir veturinn liggur um Steinadalsheiði, vegur nr. 69. Á árunum 1933-48 var sá vegur aðalleiðin milli Hólmavíkur og annarra landshluta. Akvegurinn norður Strandir leysti hann af hólmi þegar hann var tekinn í notkun árið 1948.
Á Þorláksmessu árið 1929 varð ungur maður úti á Steinadalsheiði, eftir að hafa lent í snjóflóði á Brekkudal sem liggur upp á heiðina að vestanverðu.