Tórínó
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
![Horft yfir Tórínó með Alpafjöllin í baksýn.](../../../upload/shared/thumb/c/ce/Mg-k_Torino_Alpi.jpg/180px-Mg-k_Torino_Alpi.jpg)
Tórínó (ítalska: Torino) er borg á Norður-Ítalíu í Fjallalandi (Piedmonte) á vesturbakka árinnar Pó. Íbúar sveitarfélagsins eru um 908.000 en heildarfjöldi á borgarsvæðinu er 1,7 milljónir. Rómverjar stofnuðu borgina árið 28 f.Kr. og eftir fall Rómaveldis tóku Langbarðar hana yfir og síðan Frankar. Borgin varð hluti af hertogadæminu Savoja og höfuðborg þess ríkis 1563 og síðar konungsríkisins Sardiníu þegar það rann saman við hertogadæmið 1720. 1861 varð Tórínó svo höfuðborg sameinaðrar Ítalíu til 1865 þegar Flórens var gerð að höfuðborg. Borgin er mikil iðnaðarborg og verksmiðjur bílaframleiðandans Fiat voru stofnaðar þar 1899.
Árið 2006 voru vetrarólympíuleikarnir haldnir í borginni og nágrenni hennar.