Tarja Halonen
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Tarja Halonen var kjörinn 11. forseti Finnlands í febrúar árið 2000 og tók við embættinu þann 1. mars árið 2000. Hún var endurkjörin þann 29. janúar 2006 og núverandi kjörtímabili hennar lýkur árið 2012. Hún er fyrsti kvenkyns forseti Finnlands.
Halonen fæddist í Helsinki árið 1943. Hún útskrifaðist frá Háskólanum í Helsinki árið 1968 með meistaragráðu í lögfræði.