Viti
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Viti er mannvirki, venjulega háreist eða turnlaga, með sterkum ljósgjafa efst. Í myrkri sjá skipstjórnarmenn ljósið og vita þá hvar land er. Hver viti hefur sitt ljóseinkenni, t.d. hvítur þríblossi með 25 sekúndna millibili. Þannig er hægt að gera sér grein fyrir hvaða vita er verið að horfa á frá sjó og staðsetja sig nánar út frá því.
Vitar eru gjarnan á útnesjum, og stundum á skerjum. Baujur gegna svipuðu hlutverki, en þær standa upp úr flotholtum og þurfa því ekki að standa á föstu landi.
[breyta] Tenglar
- Vitar á Íslandi
- Siglingastofnun Íslands sem hefur umsjón með vitum á Íslandi