Ábæjarkirkja
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ábæjarkirkja | ||
Austurdalur (8. ágúst 2007) Jóna Þórunn Ragnarsdóttir | ||
Almennt | ||
Prestakall: | Mælifellsprestakall | |
Núverandi prestur: | Ólafur Hallgrímsson | |
Byggingarár: | 1922 | |
Kirkjugarður: | Bak við kirkjuna | |
Arkitektúr | ||
Efni: | Steinsteypa | |
Turn: | Enginn | |
Ábæjarkirkja er kirkja á eyðibýlinu Ábæ í Austurdal í Skagafirði. Kirkjan var byggð 1922 en bærinn hefur verið í eyði síðan 1941. Kirkjan er lítil, steinsteypt og var efni í hana flutt úr Skagafirði (ólíkt ullarlestum úr dalnum sem fóru yfir Nýja-Bæjarfjallið yfir í Leyningsdal í Eyjafirði). Kirkjunni er þjónað frá Mælifelli og er þar alltaf ein guðsþjónusta á ári. Þá koma oft yfir 100 manns í guðsþjónustu og er svo messukaffi veitt að Merkigili, sem fór í eyði 1997.
Sókninni var fyrrum þjónað frá Goðdölum en 1907 var hún lögð til Miklabæjar.