Árósar
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Árósar er önnur stærsta borg Danmerkur með 228.674 íbúa (2007) og enn fleiri í þéttum byggðum í nágrenninu. Árósar er með eina stærstu gámahöfn í skandinavíu og er höfnin einnig ásamt 100 stærstu gámahöfnum í heiminum. Árósar eru á Jótlandi og því hluti af meginlandi Evrópu ólíkt Kaupmannahöfn. Í Árósum er tiltölulega hátt hlutfall innflytjenda, eða um 12%. Í borginni er Háskólinn í Árósum þar sem tæplega 12.000 nemendur voru við nám árið 2005.
Efnisyfirlit |
[breyta] Saga
[breyta] Víkingabærinn
Elsti fornleifafundur sem fundist hefur í Árósum er frá enda sjöundu aldar. Elsti húsafundur er af hálfniðurgröfnum húsum sem að voru bæði notuð sem heimili og verkstæði. Í húsunum og jarðlögunum sem umlykja húsin hefur meðal annars fundist greiða, skartgripir og samskonar hlutir sem gefa til kynna að búseta á svæðinu hafi verið nálægt níundu öld.
Minni bæjarsamfélög eins og Holmstrup (Árósar), sem er nálægt Árósum er dagsett nálægt 800 í heimildum frá 1294.
Um árið 1040 voru slegnar myntir í Árósum, fyrst af Knud Harða og seinna af Magnúsi Góða.
[breyta] Virkisgarður
Á víkingatímabilinu var Árósar umlykin af varnargarði í formi hálfhrings. Ekki er vitað nákvæmlega hvenær myndun varnargarðsins átti sér stað en þó er talið að það sé nokkrum árum eftir fyrstu búsetu á svæðinu, fyrri hluta níundu aldar. Greftrun vorið 2005 sýnir að varnargarðurinn er byggður mjög hratt upp í kringum 934, sem gæti verið í samhengi með árás Hinriks Fuglafangara á Jótland. Seinni hluta níundu aldar var varnargarðurinn styrktur og árið 1200 var hann stækkaður gríðarlega. Eftir seinustu stækkun var varnargarðurinn 20 metra breiður og sex til átta metra hár.