Spjall:Íslensk skáld
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Varðandi flokkun á skáldum niður á aldir, hvort eigum við að láta fæðingar- eða dánarár ráða á hvora öldina fólk fer?
-G.D.H.
Það hlýtur að vera matsatriði í mörgum tilvikum, því þótt fólk sé fætt á nítjándu öld, eins og til dæmis Theódóra Thoroddsen (1963), þá skrifar hún ekkert að ráði fyrr en líða tekur á tuttugustu öldina. Eins með Stephan G. sem er fæddur 1853, hann byrjar auðvitað snemma að skrifa en megnið af því er ekki gefið út fyrr en á tuttugustu öld og á í rauninni best heima með þeim skrifum raunsæismanna sem skrifuð voru um og upp úr aldamótum.
Á hinn bóginn eru svo menn eins og Matthías Jochumson sem dó ekki fyrr en 1920, en er auðvitað 19. aldar maður, enda lítið sem ekkert undir áhrifum þeirra strauma sem hér voru áberandi í bókmenntum undir lok 19. aldarinnar og síðar.
Þannig að, eins og ég sagði fyrst, þá hlýtur þetta oft bara að vera matsatriði. Þannig að mín skoðun er sú að láta hvorki fæðingar- né dánarár ráða.
steinst
Já, það er ekki svo fjarri lagi. Við verðum þá að láta þeim það eftir sem skrifa um þessi skáld hvar þau koma fram í listanum. Ég ætla að setja inn athugasemd um þetta á síðunni.
-G.D.H.
Ein pæling: Varst þú búinn að flokka þetta niður 'rétt' skv. þessu sem þú skrifaði hérna áðan?
-G.D.H.
Svona nokkurn veginn
steinst
Eins og þú sérð er ég búinn að bæta slatta við... - Ef þú getur, þá væri einkar gott ef þú myndir fara yfir og færa til ef við á.
-G.D.H.
Halló! Could you please put this article in a categoty? Thanks! Gangleri 23:16, 27 okt 2004 (UTC)