Þjófræði
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Stjórnarfar
Listi yfir stjórnarför ríkja
|
Þjófræði (enska: kleptocracy) er stjórnarfar ríkisstjórna sem hyglar auði þjóðarinnar til valdastéttarinnar á kostnað alþýðunnar. Þjófræðissinnar skapa oft verkefni í opinberum málaflokkum og láta auðinn af þeim renna beint í eigin vasa.
[breyta] Mestu þjófræðissinnar síðustu ára
Árið 2004 birti Transparency International lista yfir þá þjóðarleiðtoga sem mestum fjármunum hefðu veitt í eigin vasa. Listinn var þannig:
- Suharto, Indónesía, 15- 35 miljarða bandaríkjadala.
- Ferdinand Marcos, Filippseyjar, 5–10 miljarða
- Mobutu Sese Seko, Zaíre, 5 miljarða
- Sani Abacha, Nígería, 2–5 miljarða
- Slobodan Milosevic, Júgóslavía, 1 miljarð
- Jean-Claude Duvalier, Haiti, 300-800 miljónir
- Alberto Fujimori, Perú, 600 miljónir
- Pavlo Lazarenko, Úkraína, 114–200 miljónir
- Arnoldo Alemán, Níkaragva, 100 miljónir
- Joseph Estrada, Filippseyjum, 78–80 miljónir