Asksveppir
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Asksveppir | ||||
---|---|---|---|---|
Myrkill (Morchella esculenta)
|
||||
Vísindaleg flokkun | ||||
|
||||
Undirskiptingar/Flokkar | ||||
|
Asksveppir (fræðiheiti: Ascomycota) eru sveppir sem framleiða gróin í einkennandi gróhirslum sem eru kallaðar askar (úr grísku: askos, „poki“ eða „vínbelgur“) eða grósekkir. Þessi fylking taldi um 12.000 tegundir árið 1950 sem eru um 75% af öllum þekktum sveppum. Árið 2001 voru asksveppir orðnir 32.739 talsins. Til asksveppa teljast meðal annars flestir sveppir sem mynda skófir með þörungum, ásamt gersveppum, myrklum, jarðsveppum og sveppum af ættkvíslinni Penicillium.