Atferlisgreining
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Atferlisgreining leitast við það að rannsaka atferli, hvaða þættir í umhverfinu hafi áhrif á það og hvernig atferli hafi aftur áhrif á umhverfið. Margir þeirra sem leggja stund á atferlisgreiningu eru einnig atferlissinnar.
Flestir fylgismenn atferlisstefnunnar viðurkenna að til séu ákveðin hugarferli sem komi á milli áreitis sem verkar á lífveru og atferlis hennar en skilgreina þau annað hvort einnig sem atferli (sem ekki sést) eða sem fylgifiska atferlis sem ekki geti verið orsakir atferlis.
Þeir telja líka að líta megi á nám sem breytingu á atferli manna og dýra og því snúast margar rannsóknir í atferlisfræði um það. Nýverið hafa atferlissinnar snúið sér að ýmsum flóknum tegundum náms, svo sem tungumálanáms.