Ayn Rand
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Ayn Rand (2. febrúar 1905 - 6. mars 1982) var bandarískur rithöfundur og heimspekingur, sem boðaði í verkum sínum skynsamlega einstaklingshyggju og einstaklingsframtak. Stjórnmálahugmyndir hennar eru í anda laissez-faire kapítalisma og frjálshyggju en í heimspeki var hún einkum undir áhrifum Aristótelesar og Nietzsches.
Rand fæddist í Sankti Pétursborg í Rússlandi og hét Alissa Zinovievna Rosenbaum. Hún gerðist snemma andstæðingur hjarðhyggju, og tókst henni að komast til Bandaríkjanna í ársbyrjun 1926, þar sem hún hélt til Hollywood í því skyni að freista gæfunnar sem handritshöfundur. Hún giftist leikaranum Frank O’Connor 1929 og gerðist bandarískur ríkisborgari 1931. Hún samdi nokkrar sögur og leikrit á fjórða áratug. En kunnustu verk hennar komu út seinna, skáldsögurnar The Fountainhead 1943 (sem birst hefur í íslenskri þýðingu undir nafninu „Uppruninn“) og Atlas Shrugged 1957. Meginstefið í báðum sögunum er hið sama, einstaklingurinn gegn múgnum, sköpun gegn sníkjulífi. Báðar sögurnar hafa selst í milljónum eintaka. Í skáldsögum Rands skiptast söguhetjurnar í skapandi fólk og hamlandi og flytja söguhetjurnar langar ræður um lífsviðhorf sín. Rand skrifaði einnig margt annað um heimspeki. Seinni hluta ævinnar bjó hún í New York og lést þar.
[breyta] Tenglar
- Heimasíða Ayn Rand Institute
- „Ayn Rand“ í The Internet Encyclopedia of Philosophy
- Ádeila á Rand eftir Murray Rothbard
- Grein um Rand eftir Andra Óttarsson
- Álit Ayn Rand á frjálshyggjumönnum