Bæti
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Bætismagn | ||||||
---|---|---|---|---|---|---|
Sameiginlegt forskeyti | Tvöfaldt forskeyti | |||||
Nafn | Tákn | Tugastafur SI |
Tvöfaldur JEDEC |
Nafn | Tákn | Tvöfaldur IEC |
kílóbæti | KB/kB | 103 | 210 | kibibæti | KiB | 210 |
megabæti | MB | 106 | 220 | mebibæti | MiB | 220 |
gigabæti | GB | 109 | 230 | gibibæti | GiB | 230 |
terabæti | TB | 1012 | 240 | tebibæti | TiB | 240 |
petabæti | PB | 1015 | 250 | pebibæti | PiB | 250 |
exabæti | EB | 1018 | 260 | exbibæti | EiB | 260 |
zettabæti | ZB | 1021 | 270 | zebibæti | ZiB | 270 |
yottabæti | YB | 1024 | 280 | yobibyte | YiB | 280 |
Bæti er gagnaeining notuð í tölvum. Eitt bæti inniheldur átta bita og hver biti getur annað hvort tekið gildið 0 eða 1 þannig að sérhvert bæti getur tekið 256 mismunandi gildi (t.d. eina heiltölu á bilinu 0-255).
Bæti eru yfirleitt táknuð með hástafnum B. Sem dæmi eru (u.þ.b.) milljón bæti gjarnan táknuð sem 1 MB. Ein undanteknin er þó á þessari reglu, og er hún sú að 1 kílóbæti er gjarnan táknað með kb. Bæti eru gjarnan notuð til að tákna stærð gagnageymsla á meðan að bitar (sem táknaðir eru með litlu b-i, dæmi: 1 Mb) eru gjarnan notaðir til að tákna hraða nettenginga. Þetta veldur gjarnan ruglingi.
Einnig er gott að hafa í huga að:
1 GB = 1024 MB = 1024*1024 kb (1.048.576 kb) = 1024*1024*1024 B (1.073.741.824 bæti) = 1024*1024*1024*8 bitar = 8Gb
Það þarf því nettengingu sem býður upp á 8 Mbás (Mb/s) til að hala niður skrá sem er 1MB að stærð á einni sekúndu. Einnig margfaldar hvert forskeyti í tölvuheiminum tölu um 1024, ólíkt því sem venjan er þar sem hvert forskeyti margfaldar tölu upp um 1000.
[breyta] Gagnastærð á gagnageymslum
Framleiðendur harðra diska hafa jafnan ruglað viðskiptavini sína með því að nota ekki þetta kerfi. Hjá þeim hefur 1MB í gegnum tíðina táknað 1 milljón bæta og hafa þeir þannig blekkt viðskiptavini sína til að kaupa tæki með minni minnisgetu en þeir töldu sig vera að kaupa. Þetta mun þó hugsanlega breytast eftir að dómur sem féll árið 2007 í máli gegn einum stærsta harðdiskaframleiðanda í heimi (Seagate) þar sem þeir voru dæmdir til að greiða skaðabætur fyrir að hafa viljandi ruglað viðskiptavini sína með þessum hætti [1].