Bókfell
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Bókfell eða pergament er verkað skinn, sem notað var til að skrifa á bækur og önnur rit. Bókfell er ósútað skinn, rotað, skafið og sléttað. Skinnið er einkum af kálfum, kindum og geitum. Farið var að nota pergament í handrit á 2. öld og hélst svo uns pappír leysti það af hólmi. Pergament var (og er) einnig notað við bókband og í trumbur.
Íslendingasögurnar voru t.d. skrifaðar á bókfell. Bækur í slíku formi eru oftast kallaðar skinnhandrit.
[breyta] Tengill
- Vísindavefurinn: „Hefur einhverjum dottið í hug að skoða erfðaefni í íslenskum skinnhandritum til að finna út hvaðan skinnin komu?“
Þessi grein er stubbur sem ekki hefur verið settur í undirflokk. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina, eða með því að flokka hana betur.