Beinabúr
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Beinabúr (latína: ossuarium) er neðanjarðarhús, herbergi eða kistill beina (oftast) frá miðöldum, þar sem höfuðkúpur og bein látinna manna eru geymd. Oft eru beinabúrin í kirkjukjöllurum eða á öðrum vígðum stöðum, og hafa bein verið flutt þangað úr yfirfullum kirkjugarði (eða kirkjugörðum).
Þessi grein er stubbur sem ekki hefur verið settur í undirflokk. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina, eða með því að flokka hana betur.