Dorrit Moussaieff
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Dorrit Moussaieff (fædd 12. janúar 1950) er forsetafrú Íslands, gift Ólafi Ragnari Grímssyni. Hún er dóttir Shlomo og Aliza Moussaieff og er elst þriggja dætra þeirra hjóna. Hún hefur lengst af búið í Bretlandi þar sem fjölskylda hennar á stóra keðju skartgripaverslana og er á meðal ríkustu fjölskyldna Bretlandseyja.
Dorrit og Ólafur giftust þann 14. maí 2003 á sextugasta afmælisdegi Ólafs. Hún er ekki fyrsta íslenska forsetafrúin sem af erlendu bergi brotin, Sveinn Björnsson, fyrsti forseti Íslands, átti danska konu. Dorrit er af ísraelskum uppruna og gyðingatrúar. Hún gerðist íslenskur ríkisborgari árið 2006.