Eigið fé
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Eigið fé (e. owners equity) fyrirtækis, er skilgreint sem heildareignir að frádregnum skuldum skv. bókhaldi fyrirtækisins. Eigið fé fyrirtækis er stundum kallað bókfært virði þess.
- eigið fé = heildar eignir - skuldir
Eigið fé má einnig setja fram sem samtölu hlutafjár fyrirtækisins og óráðstafaðs hagnaðar frá fyrri árum að frádregnum hlutabréfum sem fyrirtækið kann að eiga í sjálfu sér.
- eigið fé = hlutafé + hagnaður - eigin bréf
Neikvætt eigið fé, þ.e. ef skuldir eru hærri en bókfært virði eigna, er vísbending um það að fyrirtækið sé í raun gjaldþrota.