Fernando Pessoa
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Fernando António Nogueira Pessoa (13. júní 1888 - 30. nóvember 1935) var Portúgalskt ljóðskáld og er af mörgum talinn eitt helsta móderníska ljóðskáld 20. aldarinnar.
Pessoa fæddist í Lissabon. Faðir hans lést af berklum þegar hann var ennþá barn og móðir hans giftist portúgalska konsúlnum í Durban, Suður-Afríku, þangað sem fjölskyldan svo fluttist. Pessoa lærði ensku í Durban og Höfðaborg og skrifaði sín fyrstu verk á ensku undir miklum áhrifum frá William Shakespeare og John Milton. Hann flutti aftur til Lissabon þegar hann var 17 ára til að nema við háskólann í borginni. Stúdentaverkfall gerði hins vegar þær fyrirætlanir að engu og hann hóf að vinna fyrir kaupsýslumann sem ritari og skjalaþýðandi.
[breyta] Æviágrip
- 1888: Fæddur Fernando Antônio Nogueira Pessoa, þann 13. júní í Largo de São Carlos, Lissabon.
- 1893: Faðir hans lest úr berklum og fjölskyldan þurfti að bjóða upp hluta af eignum sínum.
- 1894: Fyrsta dulnefni Fernando Pessoa var Chevalier de Pas.
- 1895: Fyrsta ljóðið sem hann skrifaði hlaut titilinn Til elsku móður minnar (À Minha Querida Mamã). Móðir hans giftist João Miguel Rosa, portúgalska konsúlnum í Durban.
- 1899: Skráist í gagnfræðaskóla Durban þar sem hann dvelst við nám í þrjú ár og nær einni hæstu einkunn skólans. Býr til dulnefnið Alexander Search.
- 1901: Skrifar fyrstu ljóðin sín á ensku. Flyst með fjölskyldu sinni til Portúgal.
- 1902: Fjölskyldan kemur til Lissabon í júní. Í september snýr Pesso einn aftur til Suður-Afríku. Gerir tilraun til að skrifa skáldsögur á ensku.
- 1903:Tekur próf í háskólanum í Góðravonarhöfða. Hlýtur ekki góðar einkunnir er nær hæstu einkunn af 899 nemendum fyrir ritgerð á ensku.
- 1904: Lýkur námi sínu í Suður-Afríku.
- 1905: Snýr aftur til Lissabon, þar sem hann býr hjá frænku sinni. Heldur áfram að skrifa ljóð á ensku.
- 1907: Fjölskyldan snýr enn og aftur til Durban. Pessoa flyst til ömmu sinnar sem deyr í ágúst og lætur honum eftir nokkurn arf.
- 1908: Byrjar að starfa sem ritari fyrir auglýsingastofu.
- 1910: Skrifar ljóð og prósa á portúgölsku, ensku og frönsku.
- 1912: Tekur til starfa sem gagnrýnandi og hlýtur sem slíkur misjöfn viðbrögð hjá elítu portúgals.
- 1913: Skrifar líkt og hann eigi lífið að leysa, þ.á m. Sjómanninn (O Marinheiro).
- 1914: Býr til dulnefnin Álvaro de Campos, Ricardo Reis og Alberto Caeiro. Skrifar ljóðin í bókinni Fjárhirðirinn (O Guardador de Rebanhos) og sömuleiðis Bók óróleikans (O Livro do Desassossego).
- 1918: Gefur út ljóð á ensku, sem m.a. fá ágæta umfjöllun í blaðinu Times.
- 1920: Kynnist Ophélia Queiroz. Móðir hans snýr aftur til Portúgal ásamt bræðrum hans. Leggst í mikið þunglyndi í október og íhugar að láta leggja sig inn á heilsuhæli. Slítur sambandi við Ophélia.
- 1921: Gefur út ensk ljóð sín í Olisipo.
- 1925: Missir móður sína þann 17. mars.
- 1929: Tekur aftur saman við Ophélia.
- 1931: Slítur aftur sambandi sínu við Ophélia.
- 1934: Gefur út bókina Skilaboð.
- 1935: Deyr þann 30. nóvember. Síðasta setningin sem hann skrifar, og það á ensku, er: ‘Ég veit ekki hvað morgundagurinn ber í skauti sér’.
[breyta] Tenglar
- Krýndu mig með rósum; grein í Lesbók Morgunblaðsins 1990
- Fernando Pessoa stofnunin
- Ævisaga Fernando Pessoa
- Mikið magn ljóða Fernando Pessoa (undir eigin nafni og dulnefni)
- Camões stofnunin