Fingur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
- Til að sjá lagið um fingurna má sjá fingurnir (gæla).
Fingur er útlimur á hendi manns, á hvorri hendi eru venjulega fimm fingur. Á hverjum fingri er nögl. Fingur eru einnig stundum kallaðir framkrókar eða guðsgaflar.
Efnisyfirlit |
[breyta] Nöfn fingra
- Þumall[1][2] (einnig kallaður þumalfingur[1][2] eða þumalputti[1][2].)
- Vísifingur[1][2] (einnig kallaður sleikifingur[1][2], bendifingur[1][2] eða vísiputti.)
- Langatöng[1][2] (einnig kölluð langastöng[1][2])
- Baugfingur[1][2] (einnig kallaður hringfingur[1][2] eða græðifingur[1][2])
- Litlifingur[1][2] (einnig kallaður litliputti[1][2] eða lilliputti[2].)
[breyta] Önnur nöfn
Vísifingur er stundum kallaður terrifingur. Langatöng krókfingur eða langastöng. Litlifingur spinka og baugfingur gullfingur eða heiðarmáni og þumallinn Þumi karl sbr.:
- „Ég sá sauð í brekku,“ segir hann Þumi karl.
- „Förum við þangað,“ segir hann Sleikifingur.
- „Til hvers?“ segir Löngutöng.
- „Stel´ onum,“ segir Heiðarmáni.
- „Ég vil heldur sitja heima með hálvan verð,“ segir Litlifingur.
(úr þjóðsagnasafni Ólafs Davíðssonar).
[breyta] Auka upplýsingar
- Í barnagælunni „Fingurnir“ koma fram nafn allra fingranna.
- Allann textann má finna á Wikiheimild.
- Þumalfingur, þumalfingur, hvar ert þú?
- Hér er ég, hér er ég.
- Góðan daginn, daginn, daginn.
- Vísifingur, vísifingur, hvar ert þú?
- Hér er ég, hér er ég.
- Góðan daginn, daginn, daginn.
- Allann textann má finna á Wikiheimild.
[breyta] Tengt efni
[breyta] Heimild
- Tíu eru á þér tær og fingur .... Skoðað 30. mars, 2006.
- Af hverju heita allir puttarnir fingur nema einn sem heitir TÖNG, langatöng?. Skoðað 8. janúar, 2007.