Framburður
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Framburður á við það hvernig orð eru sögð í töluðu máli, venjulega með vísun til hljóðfræði og hljóðkerfis tungumálsins. Framburður getur verið mismunandi milli hópa málhafa í tilteknu tungumáli. Dæmi um það er norðlenskur framburður í íslensku sem er staðbundinn framburður.