Genf
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Genf (franska: Genève, ítalska: Ginevra, retó-rómanska: Genevra) er borg í sambandsríkinu Sviss, höfuðstaður Genfar-kantónu.
Borgin liggur í um 370 metra hæð yfir sjávarmáli. Hún stendur við suðvesturenda Genfarvatns og stendur á báðum bökkum Rínar-fljóts, þar sem áin fellur úr vatninu. Genf hefur yfirbragð heimsborgar en þar eru skrifstofur flestra æðstu stofnana og samtaka heimsins, og er þar mikið fjármála- og viðskiptalíf. Borgin er við landamæri Frakklands og líkist því nokkuð frönskum borgum menningarlega séð. Hún hefur þanist mikið út undanfarna áratugi og margir útbæjarkjarnar myndast. Gamli bæjarhlutinn er á Rínarbakka, þar sem þriggja turna dómkirkjan gnæfir yfir.