Grímsstaðir
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Grímsstaðir (á Fjöllum) er bær á Hólsfjöllum og fyrsti bær sem komið er að þegar farið er austur yfir Jökulsá á Fjöllum. Brú yfir ánna á þessum stað var byggð árið 1947 en þar var áður lögferja. Bærinn stendur í dag nokkrum kílómetrum norðar en áður en hann var færður vegna sandfoks. Á Grímsstöðum var eitt sinn bænhús en þar er nú örlítil ferðaþjónusta. Þar hefur verið mönnuð veðurathugunarstöð frá árinu 1907.