Hágöngur
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hágöngur eru nyrsta fjall í fjallgarðinum austan við Flateyjardalsheiði á skaganum milli Eyjafjarðar og Skjálfandaflóa í Suður-Þingeyjarsýslu. Hágöngur bera einnig nöfnin Bakrangi og Galti, en það fer eftir því hvaðan horft er á þær, hvaða nafn er notað. Undir fjallinu vestanverðu er eyðibýlið á Knarrareyri á Flateyjardal.