Flokkur:Höggmyndalist
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Höggmyndalist er sú listgrein að höggva (hlutbundna eða óhlutbundna) mynd úr steini eða öðru hörðu efni, gera t.d. líkan úr marmara eða styttu úr bronsi. Áður en orðið myndhöggvari var myndað í íslensku, voru þeir sem stunduðu höggmyndalist stundum nefndir bíldhöggvarar og var það orð myndað að danskri fyrirmynd. Bíldhöggvari var þó oftast haft um myndskera, þ.e.a.s. þá sem fást við útskurð mynda.
- Aðalgrein: Höggmyndalist