Hjálendur Bandaríkjanna
Úr Wikipediu, frjálsa alfræðiritinu
Hjálendur Bandaríkjanna nefnast þau yfirráðasvæði Bandaríkjanna sem tilheyra ekki neinu af hinum 50 fylkjum eða Washington D.C. sem telst vera alríkissvæði. Allt eru þetta eyjur í Kyrrahafi og Karíbahafi, sumar þeirra byggðar en flestar óbyggðar. Staða þessara svæða er einnig misjöfn, sum þeirra njóta nánast fullrar sjálfsstjórnar.
Íbúar hjálendanna teljast margir vera bandarískir ríkisborgarar en þeir borga ekki skatta til Bandarísku alríkisstjórnarinnar, taka ekki þátt í forsetakosningum og né kjósa þeir þingmenn með atkvæðisrétt á Bandaríkjaþing (Púertó Ríkó kýs þó áheyrnarfulltrúa).